Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. maí 2013 þar sem sótt er um leyfi til þess að fjölga íbúðum úr tveimur í fjórar og breyta útliti götu- og bakhliðar fjölbýlishúss á lóð nr. 9 við Óðinsgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 24. maí til og með 24. júní 2013. Engar athugasemdir bárust.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. mars 2013 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000