Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. febrúar 2017 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 16. febrúar 2017, þar sem gerð er athugasemd við birtingu auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda um samþykkt deiliskipulagsins þar til fundin er úrlausn á því að fram kemur í greinargerð að ekkert deiliskipulag sé í gildi á svæðinu en hins vegar er í gildi deiliskipulag Ánanausts frá 1997 sem nær að hluta inn á deiliskipulagið Ánanaust - Eiðsgranda. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt uppdrætti Hornsteina arkitekta og Reykjavíkurborgar, dags. 31. október 2016, lagfærður 2. mars 2017.