Lögð fram tillaga Hornsteina arkitekta og Reykjavíkurborgar, dags. 31. október 2016, að deiliskipulagi strandsvæðis Eiðsgranda - Ánanaustar. Skipulagssvæðið er um 5,5 hektarar og er eitt stærsta græna svæðið í Vesturbænum og hefur mikið gildi sem útivistarsvæði og er eitt af markmiðum skipulagsins að bæta möguleika til útivistar allt árið um kring. Einnig felst m.a. í tillögunni að bæta grjótvarnargarðinn til að tryggja öryggi og að setja inn í skipulag aðgreinda göngu- og hjólastíga.