Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 18. september 2015 var lögð fram fyrirspurn Kjartans Hafsteins Rafnssonar, mótt. 15. september 2015, varðandi rekstur veitingastaðar í flokki II á jarðhæð hússins á lóð nr. 85 við Laugaveg, samkvæmt tillögu K.J. hönnunar ehf. dags. 14. september 2015. Einnig er lagt fram umboð eiganda, dags. 15. september 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 25. september 2015.