Lögð fram fyrirspurn Magnúsar Jenssonar dags. 10. maí 2019 um breytingu á deiliskipulagi Seljahverfis vegna lóðarinnar nr. 2 við Tjarnarsel sem felst í að heimilt verði að fjölga íbúðum um eina og stækka byggingarreit þannig að svalir rúmist innan reitsins. Einnig eru lagðir fram uppdrættir Magnúsar Jenssonar dags. 7. maí 2019.