Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 4. desember 2015 var lögð fram fyrirspurn Magnúsar Alberts Jenssonar, mótt. 25. nóvember 2015, varðandi fjölgun íbúða í húsinu í 4-6 á lóð nr. 2 við Tjarnarsel ásamt byggingu nýs húss á baklóð upp að lóðarmörkum lóðarinnar nr. 4 við Tjarnarsel og nr. 17 við Öldusel, Ölduselsskóla, samkvæmt uppdr. Magnúsar Alberts Jenssonar ark., dags. 19. nóvember 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 17. desember 2015.