Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. nóvember 2018 var lögð fram umsókn
THG Arkitekta ehf.
dags. 7. nóvember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Landspítala Grensásdeildar vegna lóðarinnar nr. 1 við Álmgerði. Í breytingunni felst að byggingarreitur vestan við núverandi aðalbyggingu er stækkaður og sameinaður og bílastæðum verður fjölgað á lóðinni, samkvæmt uppdr.
THG Arkitekta ehf.
dags. 27. september 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.