Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi "Fossvogshverfi - einbýlishús". Í breytingunni felst að afmarkað svæði suður af Kvistalandi 26 er tekið út úr deiliskipulagsáætluninni og fært undir breytingu á deiliskipulagi Kvistalands 26, samkvæmt uppdr. Landslags dags. 3. maí 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 27. maí 2022 til og með 27. júní 2022. Engar athugasemdir bárust.