Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. september 2019 var lögð fram fyrirspurn Valdimars Birgissonar dags. 18. september 2019 ásamt greinargerð ódags. um hækkun á bakhúsi lóðarinnar nr. 8 við Suðurgötu um eina hæð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. október 2019.