Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. júní 2017 var lögð fram fyrirspurn
THG Arkitekta ehf.
, mótt. 28. apríl 2017, um að breyta skilmálum deiliskipulags fyrir Efstaland 26 sem felst í að heimila rekstur gististaðar/hótels í flokki V og veitingastaðar í flokki II á lóðinni. Einnig er lagt fram bréf
THG Arkitekta ehf.
, dags. 28. apríl 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. júní 2017.