Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. desember 2016 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta gististað í flokki V, teg. hótel fyrir 40 gesti í 21 herbergi og veitingastað í flokki II á 3. hæð í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 26 við Efstaland. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. janúar 2017.
Gjald kr. 10.100