Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. september 2017 var lögð fram umsókn
THG Arkitekta ehf.
, mótt. 17. ágúst 2017, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags fyrir lóðina nr. 26 við Efstaland. Í breytingunni felst að bætt er við texta skilmála ákvæði sem skilgreinir leyfilegan flokk gistiaðstöðu og veitingaþjónustu á 3. hæð hússins, samkvæmt tillögu
THG Arkitekta ehf.
, dags. 27. september 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.