Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 20. febrúar 2015 var lögð fram fyrirspurn Hallgríms Friðgeirssonar dags. 17. febrúar 2015 um að breyta skrifstofum á fyrstu hæð hússins á lóð nr. 3 við Borgartún í veitingastað með vínveitingum, samkvæmt uppdr. Hallgríms Friðgeirssonar dags. 14. febrúar 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags 27. febrúar 2015.