Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. febrúar 2020 var lögð fram fyrirspurn Sigurðar Hallgrímssonar dags. 4. febrúar 2020 um að byggja um 40 litlar og meðalstóra íbúðir auk þjónustu á hluta 1. hæðar auk bílakjallara í nýbyggingum á lóðinni nr. 54 við Snorrabraut, samkvæmt tillögu Arkþings - Nordic ehf. ódags. Fyrirhugað er að í núverandi húsnæði á lóð verði skrifstofur og blönduð þjónusta. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2020.