Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. nóvember 2016 var lögð fram fyrirspurn Páls Hjalta Hjaltasonar, mótt. 7. nóvember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 54 við Snorrabraut sem felst í að byggja upp verslun, þjónustu og hótel, samkvæmt tillögu, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.