Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. nóvember 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja kvisti á þak, flóttastiga á austurhlið og breyta innra skipulagi í húsi á lóð nr. 38A við Bragagötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2014. Stækkun: 12,2 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bragagötu 35, 36 og 38 og Freyjugötu 24 og 25.