Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. mars 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa frá 14. mars 2017 þar sem sótt er um breytingu á áður samþykktu erindi BN048356 sem felst í því að koma fyrir útiveitingasvæði fyrir 20 manns við hús á lóð nr. 38A við Bragagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. mars 2017.
Gjald kr. 11.000