Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. desember 2017 var lögð fram umsókn
Studio F ehf.
mótt. 27. nóvember 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 1 við Áland. Í breytingunni felst að stækka byggingarreit til austurs vegna byggingu einnar hæðar viðbyggingu við húsið, samkvæmt uppdr.
Studio F ehf.
dags. 24. nóvember 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.