Lögð fram umsókn Studio F ehf. mótt. 27. nóvember 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 1 við Áland. Í breytingunni felst að stækka byggingarreit til austurs vegna byggingu einnar hæðar viðbyggingu við húsið, samkvæmt uppdr. Studio F ehf. dags. 24. nóvember 2017.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.