Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. júlí 2017 var lögð fram umsókn Teiknistofunnar Arkitektar ehf., mótt. 16. júní 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 12 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst stækkun hússins til suðurs, stækkunin myndi hýsa hótelherbergi á efri hæðum og veitingastaði á neðstu hæðinni með beina tengingu út í aðliggjandi útisvæði, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Arkitektar ehf., dags. 15. júní 2017, breytt 20. júlí 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.