Fyrirspurn
Áð lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Reykjavík Lights Hotel ehf. dags. 17. september 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar, Hallar-, Veg- og Ármúla vegna lóðarinnar nr. 12 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli ásamt breytingu á kvöð um bílastæði, samkvæmt uppdr. T.ark dags. 26. september 2013. Tillagan var auglýst frá 18. október til og með 29. nóvember 2013. Engar athugasemdir bárust.