Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 21. desember 2017 þar sem ekki er gerð athugasemd við að sveitarstjórn birti auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda en bendir á að áður þarf að lagfæra breytta skilmála um byggingarmagn, þannig að fram komi hver er stærð bílageymslu. Gefa skal upp nýtingarhlutfall í samræmi við gildandi skipulagsreglugerð, sbr. breytingu á skipulagsreglugerð nr. 903/2016. Senda þarf Skipulagsstofnun lagfærð gögn til vörslu.