Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. júlí 2013 þar sem sótt er um leyfi til að breyta bílastæðum þannig að þeim verður fækkað um 12 og komið er fyrir aðstöðu fyrir rútur, leigubíla og tveimur bílastæðum fyrir fatlaða á lóð nr. 12 við Suðurlandsbraut. Bréf frá hönnuði dags. 5. júlí 2013 fylgir erindi. Gjald kr. 9.000