Á fundi skipulagsfulltrúa 12. ágúst 2016 var lögð fram umsókn Ask arkitekta ehf., mótt. 3. ágúst 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar - Ármúla vegna lóðarinnar nr. 18 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst að hækka bakhús um eina hæð eða í 5 hæðir, sambærilegt með núverandi framhúsi, skv. uppdrætti ASK arkitekta ehf., dags. 3. ágúst 2016. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1111/2014.