Fyrirspurn
Lögð fram umsókn PK arkitekta ehf., mótt. 2. febrúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 21 við Kirkjuteig. Í breytingunni felst að að fjölga íbúðum í húsinu úr fjórum í sjö og heimila verslun og/eða þjónustustarfsemi í húsnæðinu. Einnig er lagt fram bréf Pálmars Kristmundssonar, dags. 1. febrúar 2017. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. mars 2017.