Lögð fram fyrirspurn PK-Arkitekta ehf. f.h Ásvelli ehf. dags. 16. september 2011 um fjölgun íbúða úr fjórum í sjö í húsinu nr. 21 við Kirkjuteig. Einnig er óskað eftir að fjölga bílastæðum um eitt.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.