Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn skrifstofa eigna og atvinnuþróunar dags. 2. október 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.3 vegna lóðanna nr. 4 og 6 við Laugaveg. Í breytingunni felst m.a. að húsið Skólavörðustígur 3 á lóðinni nr. 4 við Laugaveg fái sérstaka skilgreinda lóð samkvæmt uppdrætti Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 02. október 2013. Tillagan var auglýst frá 8. nóvember til og með 20. desember 2013. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagt fram bréf Hverfisráðs miðborgar dags. 29. nóvember 2013 þar sem ekki er gerð athugasemd við tillöguna.