Fyrirspurn
Lagt fram erindi Öldunga hf. dags. 13. október 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ármannsreits vegna lóðarinnar nr. 2-4 við Sóltún. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni, breytingu á innra rými ásamt breytingu á bílastæðum og lögun byggingarreitar húshluta nr. fjögur og tengibyggingar o.fl., samkvæmt uppdrætti Nexus Arkitekta dags. 11. október 2011. Einnig er lagt fram skuggavarp Nexus Arkitekta ódags.