Gististaður í flokki II og setja flóttasvalir og björgunarop
Frakkastígur 14A
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 705
16. nóvember, 2018
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. nóvember 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. nóvember 2018 þar sem sótt er um leyfi fyrir gististað í flokki II, tegund g, fyrir 14 gesti ásamt leyfi til að setja flóttasvalir og björgunarop á norðurhlið húss á lóð nr. 14A við Frakkastíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags.. 15. nóvember 2018.
Meðfylgjandi er umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 10. ágúst 2018. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. ágúst 2018, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. ágúst 2018. Gjald kr. 11.000
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. nóvember 2018.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101838 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010629