Fyrirspurn
Lagt fram bréf skipulagsstjóra Garðabæjar dags. 21. mars 2013 þar sem boðað er til samráðs- og upplýsingafundar vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til skógræktarsvæðis í Sandahlíð og til Heiðmerkur innan Garðabæjar og tillögu að deiliskipulagi sem nær til sama svæðis. Einnig er lögð fram tillaga Garðabæjar og Landslags ehf. dags. 14. febrúar 2013.