Fyrirspurn
Lagt fram erindi skrifstofu borgarstjórnar dags. 30.apríl 2015 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á umsókn Hótels Kletts að Mjölnisholti 12-14 um endurnýjun og breytingu fyrir gististaðinn sem skilgreindur er í flokki V. sótt er um veitingatíma áfengis til kl. 23:00 alla daga. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8.maí 2015.