Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 10. júlí 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júlí 2015 þar sem spurt er hvort leyft yrði að fella niður bílgeymslu í neðri kjallara og útbúa skábraut í efri kjallara í stað bílalyftu, við þetta fækkar bílastæðum um 12 í hóteli á lóð nr. 12-14 við Mjölnisholt. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. ágúst 2015.