Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. mars 2019 var lögð fram fyrirspurn Bergs Benediktssonar dags. 17. febrúar 2019 ásamt bréfi dags. 17. febrúar 2019 um að gera innkeyrslu á lóð nr. 43 við Laufásveg og tvö bílastæði. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. mars 2019.