Lögð fram greinargerð Teiknistofunnar Storð ehf. dags. 10. júlí 2009 að breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis Fylkis. Deiliskipulagssvæðið afmarkast af gervigrasvelli og lóð Árbæjarsundlaugar til norðurs, göngustíg neðan við Klapparás til austurs og göngustíg meðfram Elliðaám til vesturs samkvæmt uppdrætti, dags. 21. apríl 2010. Einnig eru lagðar fram umsagnir Veiðimálastofnunar dags. 19. ágúst 2009 og 23. nóvember 2009 ásamt umsögn Umhverfisstofnunar dags. 30. september 2009, umsögn umhverfis- og samgöngusviðs dags. 9. mars 2010 og tölvubréf Arnars Hafsteinssonar framkvæmdastjóra Fylkis dags. 15. apríl 2010. Jafnframt er lagt fram minnisblað skipulagsstjóra dags. 20. apríl 2010 og umsögn hverfisráðs Árbæjar dags. 21. maí 2012.