Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Arkís arkitekta ehf.
f.h. EA11 ehf. mótt. 14. desember 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 23 við Furugerði. Í breytingunni felst að fjarlægja núverandi mannvirki og koma fyrir íbúðum á lóð. Nýir byggingarreitir verði skilgreindir á lóðinni sem skipt er upp í reit A og reit B og lóð sameinuð, kvöð um nýtingu lóðar fyrir götu á reit B verður aflétt o.fl., samkvæmt deiliskipulags-, skýringar- og skilmálauppdráttum
Arkís arkitekta ehf.
dags. 16. júlí 2020. Einnig er lagður fram lagfærður skýringaruppdr. merktur 1.03 dags. 16. júlí 2020 br. 17. ágúst 2020. Jafnframt er lögð fram húsakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 19. janúar 2018, umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 28. maí 2018 og hljóðvistarskýrsla Mannvits dags. 14. ágúst 2020. Tillagan var auglýst frá 16. september 2020 til og með 28. október 2020. Eftirtaldir sendur athugasemdir/umsögn: íbúaráð Háaleitis- og Bústaðahverfis dags. 1. október 2020, Emilía Valdimarsdóttir dags. 25. október 2020, Bryndís Valsdóttir og Snædís Logadóttir dags. 25. október 2020, Ólöf Jóhannsdóttir dags. 25. október 2020, Helga Helgadóttir og Kristinn Zimsen dags. 26. október 2020, Elfar Andri Aðalsteinsson dags. 26. október 2020, Guðrún S. Gröndal dags. 27. október 2020, Ásta Ragnheiður Thorarensen og Þórarinn Hilmarsson dags. 27. október 2020, Fanný Jónmundsdóttir dags. 27. október 2020, Jóhanna Þórunn Ásgrímsdóttir og Hermann Þór Gíslason dags. 27. október 2020 og Ingibjörg Halldórsdóttir hdl. f.h. íbúa og eigendur Furugerðis 10 og 12 dags. 28. október 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. október 2020 og er nú lagt fram að nýju.