Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. september 2014 þar sem spurt er hvort innrétta megi tímabundið frá 1. maí 2015 - 31. ágúst 2015 svefnskála fyrir ferðamenn þar sem nú er veislusalur og söngskóli á veturna á 3. hæð í húsi á lóð nr. 11 við Fákafen. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. september 2014.