framkvæmdaleyfi
Fiskislóð - Hjólastígur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 373
18. nóvember, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Faxaflóahafna dags. 5. júlí 2011 að breytingu á deiliskipulagi við Fiskislóð og Hólmaslóð skv. uppdrætti Teiknistofu arkitekta dags. 9 júní 2011. Í breytingunni felst að lóðin Hólmaslóð 3 minnkar og skiptist upp og vestari hluti lóðarinnar skiptist upp í tvær lóðir. Tillagan var auglýst frá 30. september til og með 11. nóvember 2011. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.