Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Félagsbústaða hf.
dags. 27. mars 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.381, Laugarás. Í breytingunni felst breyting á afmörkun deiliskipulagsins og aukningu á byggingarmagni lóðarinnar nr. 6 við Austurbrún, samkvæmt uppdr. Ask arkitekta ehf. dags 25. mars 2014. Tillagan var auglýst frá 5. maí til og með 16. júní 2014. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Eigendur og íbúar að Vesturbrún og Austurbrún dags. 14. júní 2014 og Jóhann G. Jóhannsson dags. 16. júní 2014.