Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 5. maí 2015 vegna útboðsins "gönguleiðir, ræktun og frágangur" um hvort sækja þurfi um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við gerð stígs í Blesugróf, frá Jöldugróf að undirgöngum undir Reykjanesbraut með Strætó tengingu, Áætluð lengd er 300 metrar.