Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Indro Candi dags. 29. apríl 2022 ásamt bréfi dags. 29. apríl 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skútuvogs vestur vegna lóðanna nr. 5 og 7-9 við Skútuvog. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni og stækkun á byggingarreitum lóðarinnar nr. 7-9 ásamt fjölgun bílastæða, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. VA arkitekta ehf. dags. 2. mars 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 5. september 2022 til og með 3. október 2022. Engar athugasemdir bárust.