Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. apríl 2021 var lögð fram fyrirspurn Odds Ólafssonar og Guðrúnar Haraldsdóttur dags. 25. mars 2021 um að setja kvisti á húsið á lóð nr. 25C við Freyjugötu með svölum sem snúa í suðvestur. Einnig er lagt fram samþykki fyrir framkvæmdum dags. 11. apríl 2021 og skissur á ljósmyndum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. maí 2021.