Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Aðalheiðar Atladóttur, mótt. 15. nóvember 2017, ásamt greinargerð dags. 8. júní 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Einarsness vegna lóðar nr. 66 við Einarsnes. Breytingin felst í því að skipta lóðinni, Einarsnesi 66/66A uppí tvo hluta: Einarsnes 66/66A og Einarsnes 66B og koma fyrir byggingarreit fyrir hús og bílgeymslu, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. A2F arkitekta, dags. 10. október 2017. Tillagan var auglýst frá 5. janúar 2018 til og með 16. febrúar 2018. Engar athugasemdir bárust.