Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. janúar 2021 var lögð fram fyrirspurn Guðmundar Gunnlaugssonar dags. 18. janúar 2021 um stækkun hússins á lóð nr. 53A við Grettisgötu sem felst í að gera 15.5 m2 útbyggingu við gafl hússins á lóð nr. 53A við Grettisgötu, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Archus slf. dags. 14. janúar 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. janúar 2021.