Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. nóvember 2022 var lögð fram fyrirspurn Charles Mackey, dags 21. september 2022, um hækkun hússins á lóð nr. 28 við Einarsnes um eina hæð eða hækka þak hússins ásamt því að gera tvö bílastæði á vesturhluta lóðarinnar. Einnig eru lagðar fram skissur á yfirlitsmyndum, dags. 20. september 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. nóvember 2022.