Lögð fram umsókn Þorgeirs Jónssonar, dags. 3. júlí 2017 um breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða vegna lóðar nr. 12 við Bíldshöfða skv. uppdrætti, dags. 27. mars 2017. Breytingin gengur út á að byggja björgunarstiga með brú utan byggingarreits.
Svar
Umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa. Vakin er athygli umsækjanda á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.