Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. september 2011 þar sem sótt er um leyfi fyrir þegar byggðum garðskála á lóðamörkum við Eiríksgötu 8 og breytingum innanhúss á 2. hæð sem felast í tilfærslum á innveggjum og snyrtingum í gistiheimili á lóð nr. 6 við Eiríksgötu. Meðfylgjandi er bréf arkitekts ódags. og samþykki nágranna á nr. 8 dags. 12. júní 2011. Stærðir: 15,7 ferm., 41,6 rúmm Gjald kr. 8.000 + 3.328
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Eiríksgötu 8 og Freyjugötu 47 og 49.