Lögð fram umsókn GP-arkitekt ehf. dags. 18. nóvember 2016 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 14 við Bankastræti. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður til suðurs, samkvæmt uppdr. GP-arkitekta ehf. dags. 18. nóvember 2016. Meðfylgjandi er samþykki eigenda að Bankastræti 14 og Skólavörðustíg 2.
Svar
Vísað til meðferðar verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.