Lögð fram umsókn VSÓ ráðgjafar, dags. 19. september 2016 um breytingu á deiliskipulagi Vatnagarða vegna lóðanna Sundabakka 2 og 4. Í breytingunni felst að sameina lóðirnar, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf., dags. 22. ágúst 2016. Einnig lagt fram bréf Eimskips, dags. 12. september 2016 og bréf Faxaflóahafna, dags. s.d.
Svar
Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.6 og grein 12 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.