(fsp) hreinsun ofanvatns fyrir hluta nýs Arnarnesvegar og breikkun Breiðholtsbrautar
Elliðaárdalur við Dimmu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 651
29. september, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. ágúst 2017 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, mótt. 17. ágúst 2017, um framkvæmdaleyfi sem felst í að gera nýjan hjólastíg ásamt tilheyrandi lýsingu frá stígamótum við brú yfir Elliðaár við Breiðholtsbraut til suðurs gegnum undirgöng undir Höfðabakka að núverandi göngustíg sunnan undirganga, samkvæmt uppdr. VSÓ ráðgjafar og umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 26. júlí 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 29. september 2017.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 29. september 2017.
Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 5. 3 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016