Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals svæði norðan Miklubrautar. Breytingin felst í því að skipulagsmörkum deiliskipulags Elliðaárdals norðan Vesturlandsvegar er breytt og minnkar skipulagssvæðið um 10 ha samkvæmt uppdr. Landslags dags. 30. mars 2021. Tillagan var auglýst frá 7. júlí 2021 til og með 31. ágúst 2021. Engar athugasemdir bárust.